Vestfirska tónlistarkonan Árný Margrét gefur í dag út sitt annað lag, Akureyri, en lagið verður á væntanlegri EP plötu hennar sem kemur út í febrúar á vegum breska útgáfufyritækisins One Little Independent.
Lagið var samið á Akureyri er hún sótti bæinn heim í fyrsta skipti síðasta sumar. Lagið fjallar þó ekki um Akureyri heldur er yrkisefnið persónulegt í bland við áhrif frá umhverfi og veðri. Laginu fylgir einfalt og fallegt tónlistarmyndband sem tekið var upp á Vigdísarvöllum á dögunum. Árný Margrét er fædd og uppalin á Ísafirði og sótti þar tónlistarskóla frá 6 ára aldri þar sem hún lærði á píanó. Hún eignaðist sinn fyrsta gítar þegar hún var 14 ára og varði klukkustundum og heilu dögunum í herberginu sínu við að læra á hann uns hún fékk sjálfstraustið til að semja sína eigin tónlist.
Tónlist Árnýjar Margrétar og textar mála fallegar en á sama tíma sársaukafullar myndir innblásnar af hennar lífi og umhverfi. Í gegnum tónlistina má upplifa hvernig það er að búa á stað sem er umkringdur háum fjöllum og sem sólin nær ekki til í nokkra mánuði á ári. Tónlist Árnýjar er best lýst sem indískotinni þjóðlagatónlist en þótt tónlistin hafi sinn eigin hljóðheim, sækir Árný Margrét innblástur til tónlistarfólks eins og Adrianne Lenker, Billie Marten, Aldous Harding og landa síns Ásgeirs.
Árný Margrét hefur undanfarna mánuði verið við upptökur á EP-plötu og sinni fyrstu breiðskífu í Hljóðrita í Hafnarfirði ásamt upptökustjóranum Guðmundi Kristni Jónssyni.
Umræðan