Á föstudaginn 21. júní fékk tónlistarmaðurinn Birgir afhenta platínuplötu fyrir 10 milljón streymi á Spotify á laginu „Can You Feel It.”
Áður hefur tónlistarfólk fengið gull- og platínuplötur sem Félag hljómplötuframleiðanda gaf sem virðingarvott fyrir framúrskarandi sölu á plötum. Nú þegar neysla á tónlist hefur tekið breytingum undanfarin ár þótti Öldu Music viðeigandi að aðlaga þetta með tilliti til streymisveitna.
Lagið Can You Feel It hefur meir að segja fengið þegar þetta er skrifað ríflega 12 milljónir spilana og gefur ekkert eftir. Birgir gaf einnig út nýtt lag af komandi plötu sinni, en lagið heitir „For Our Love.” Platan sjálf kemur út 2. ágúst og mun hún bera nafnið Untold Stories. Lagið og texta Birgir og Arnar Guðjónnson.
Birgir á Instagram
Alda Music á Insagram
Umræðan