Hljómsveitin Yellow District var að senda frá sér lagið „Nobody.” Þetta byrjaði allt árið 2018 þegar einn meðlimur sveitarinnar, Tómas fór í Stúdíó Sýrland þar sem tónlistarmaðurinn Alex var að stunda nám. Árni og Alex þekktust fyrir þannig Tómas kom þarna inn því Alex leitaði af söngvara á Facebook, það var ekki aftur snúið !
Tómas skaust síðan til Brighton að taka upp lag fyrir Söngvakeppni sjónvarpsins og Alexi fannst laglínan virkilega catchy og ákvað að henda í Remix sem endaði á því að vera byrjunin á hljómsveitinni Yellow District. Tómas er söngvari og hefur tekið þátt í Söngvakeppninni árið 2018 með lagið „Ég og þú” og gaf út lagið „Walking WIthout You” sama ár.
Alex hefur verið að semja raftónlist síðan 2011 og lauk námi í Stúdíó Sýrland árið 2018. Alex er einnig lagahöfundur og textahöfundur hljómsveitarinnar. Árni Hlynur er gítarleikari hljómsveitarinnar. Hann leikur á píanó og gítar og lærir á rafgítar hjá FÍH. Hann kom seinast fram með tónlistarmanninum Skauta í laginu Vittu til.
„Við erum ótrúlega heppnir með hljómsveit þar sem við erum allir á sama staðnum, það sem varðar virðingu og samvinnu. Góðir félagir sem hafa það sameiginlegt að elska að búa til tónlist.”
Textin var saminn um reynslusögur sem Alex sá á ,,Fávitar” Instagramminu hjá Sólborgu Guðbrandsdóttur en hann áttaði sig fljótlega á því að Tómas þyrfti að syngja textann þannig að hann snéri kynjahlutverkinu við fyrir hann. Bandið gefur út 2 ný lög í enda júlí en bæði lögin eru samin af Alexi, en annað lagið og laglínan er samið af Rob Price sem hefur unnið mikið með Tómasi í Söngvakeppninni og öðrum verkefnum.
Umræðan