September og Birgitta Haukdal senda frá sér lagið Aðeins nær þér.
September er lagahöfunda- og framleiðslu teymi skipað af þeim Eyþóri Úlfari Þórissyni og Andra Þór Jónssyni og hafa þeir síðastliðin þrjú ár gefið út lög sem þeir hafa unnið ásamt þekktum íslenskum söngvurum þ.á.m. Jóni Jónssyni og Steinari. Það var mikið fagnaðarefni þegar Birgitta Haukdal hitti þá og lagið Aðeins nær þér varð til, enda Birgitta ein af goðsögnum íslenskrar popptónlistar. Írafár kom aftur saman eftir margra ára hlé í Eldborg í fyrrasumar og vakti mikla lukku. Það mátti með sanni segja að aðdáendur hljómsveitarinnar höfðu engu gleymt og muni því vonandi kætast þegar Birgitta sendir frá sér nýtt efni.
“Um daginn vorum við Eyþór í stúdíóinu að pæla hvaða listamönnum við værum til í að gera lag með, upp kom sú hugmynd hjá okkur hvað það væri mikil gargandi snilld að gera lag með Birgittu Haukdal þar sem hún er ákveðin táknmynd í íslensku poppi og við vorum báðir vægast sagt súper fans þegar við vorum litlir. Það sama kvöld sömdum við lagið sem rann tiltölulega fljótt frá okkur og við sendum henni demóið. Nokkrir dagar liðu þar til hún svaraði okkur og sagðist vera mega til. Hún kom til okkar upp í stúdíó og söng allt lagið inn á einu kvöldi. Frá demói yfir í loka útgáfu lagsins liðu einungis 2 vikur. “
September á Facebook
September á Instagram
Birkitta Haukdal á Facebook
Birgitta Haukdal á Instagram
Umræðan