Tónlistarmaðurinn Hlynur Ben sendir í dag frá sér plötuna II Úlfar.
II ÚLFAR er þriðja sólóplata Hlyns og fylgir í kjölfarið á Leiðin heim (2014) sem inniheldur meðal annars lögin Hrópum, Það er allt í lagi, Kaldur bæði og sár, Vaknaðu og Það þarf svo lítið til, sem öll gerðu það mjög gott á öldum ljósvakans. Platan virkar sem ein heild frá upphafi til enda, þrátt fyrir að hvert lag standi líka eitt og sér. Textarnir mynda sögu sem er þó vel opin til túlkunar og hver hlustandi getur upplifað hana á sinn hátt. Lögin fjalla um lífið, tregan og baráttuna sem við eigum við sjálf okkur og aðra, og hvernig vonin og seiglan getur komið okkur í gegnum ótrúlegustu hindranir.
Tónlistin er nokkurs konar samblanda af fyrri plötum Hlyns. En þó með rafrænu ívafi á köflum og afturhvarfi í bílskúrsrokkið sem átti hug hans allan á unglingsárunum. Platan kemur út í takmörkuðu upplagi á CD og ótakmörkuðu upplagi á öllum helstu streymisveitum. Útgáfutónleikar og almennur fögnuður fer fram á hinum magnaða og nýinnréttaða tónleikastað Ölver í Glæsibæ í kvöld, föstudaginn 30. ágúst.
Miðasala við inngang og platan til sölu á föstu formi á meðan birgðir endast. Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00.
Hlynur Ben á Facebook
Hlynur Ben á Instagram
Umræðan