Tónlistarkonan og lagasmiðurinn Heiðrún Anna Björnsdóttir kom heim á klakann til að taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins með lagi sínu Helgi eða Sunday Boy. Nú vinnur hún að því að klára tvær smáskífur og er auk þess með nýja plötu í smíðum.
„Í augnablikinu er ég að vinna í því að klára tvær smáskífur. Veit ekki hvora þeirra ég ætla að gefa út fyrst, rólega bíómynda lagið eða danslagið. Stefni allavegana á að gefa annað þeirra út eftir tvo mánuði, vonandi bara stenst það,“ segir Heiðrún Anna, sem vinnur nú einnig hörðum höndum að útgáfu nýrrar plötu undir listamannsnafninu Lúlla sem er gælunafn Heiðrúnar innan fjölskyldunnar.
„Þetta er electronic pop plata sem er búin að vera í vinnslu undanfarið tvö og hálft ár. Við gáfum út sex lög af plötunni í fyrra, nýjasti síngúllinn heitir Nothing Changes. Það er hægt að nálgast þau öll á Spotify. Restin af plötunni kemur út þegar við höfum tíma, að öllum líkindum seinna á árinu.“
Áhuginn að verða söngkona kviknaði þegar Heiðrún Anna fékk plötu með Blondie 11 ára gömul. „Þá var sko hlustað endalaust á lagið „Heart of Glass“ og geri ég enn. Það lag eldist ótrúlega vel!“ Heiðrún Anna Byrjaði mjög ung í tónlist en einnig var leiklistin aldrei langt undan. Sem krakki var Heiðrún í kór, spilaði á blokkflautu og píanó. Á menntaskóla árunum tók hún þátt í uppfærslum leikrita og söngleikja. Eitt af hennar stóru hlutverkum var þegar hún lék í Hárinu í uppsetningu Baltasar Kormáks og eitt af aðalhlutverkunum í kvikmyndinni Nei er ekkert svar ásamt Ingibjörgu Stefánsdóttur sem kom út árið 1995.
Frá barnsaldri þar til eftir menntaskóla hafði Heiðrún Anna alltaf haft eitthvað fyrir stafni í tónlistinni en aldrei náð þeim stað sem hún vildi vera á, sem er atvinnusöngkona. „Ég vissi ekki alveg hvernig ég ætlaði mér að gera þetta, ég var ekkert tengd inn í þennan músík heim. Þannig ég fór í gulu síðurnar í pappírs símaskránni,“ segir Heiðrún Anna og hlær. „Ég hringdi í nokkra tónlistarmenn og spurði hvort þeir væru til í að gera eitt „cover“ lag með mér. Ég er sennilega tvítug þarna og ekki farin að semja neitt af viti en dauðlangaði að syngja á plötu. Eftir nokkur símtöl og kannski tvö nei hringdi ég í Stúdíó Sýrland.“ Heiðrún Anna fékk góðar móttökur hjá Sýrlandi. Óskar Páll upptökustjóri hjá Sýrlandi þá og Heiðrún Anna gáfu út lagið For what it’s Worth, sem fékk góðar viðtökur.
Eftir góða byrjun á söngferlinum var ekki aftur snúið. Heiðrún byrjaði í hljómsveit sem hét Cigarette. Hljómsveitin gaf út lagið, I Don’t Believe You sem fékk góða dóma en platan sjálf kannski ekki eins góða dóma. „Við fengum ein ummæli frá Dr Gunna að við værum eins og Capri sígarettur! Þetta var ekki mjög jákvæður dómur, líklega var hann að meina að við værum eitthvað prump. En ég er löngu búin að fyrirgefa honum og hef ekkert látið það stoppa mig þó hámenntaðir tónlistar spekúlantar hafi ekki „fílað“ mig.“
Árið 1996 flutti Heiðrún til Liverpool til að stunda nám við Liverpool Institute for Performing Arts. Eftir námið stofnaði hún pop hljómsveitina Gloss ásamt þeim Paul Cavanagh, Martin Lynch, norðmanninum Jonas Lie Theis og Paul Maguire. Hljómsveitin fékk svo útgáfusamning hjá Nude Records og EMI publishing. Eftir að hljómsveitin hafði tekið upp eina plötu og sent frá sér tvær smáskífur, Lonely In Paris og New Yourk Boy sem fengu frábæra dóma, fór plötufyrirtækið á hausinn og platan var aldrei gefin út. Stuttu eftir að Gloss ævintýrinu lauk ákvað Heiðrún að færa sig úr Pop-i yfir í rafræna tónlist og stofnaði hún sína þriðju hljómsveit, Pleasure með Norðmanninum Fred Ball. Lagið þeirra Out of Love náði svo 3. sæti vinsældarlistans í Noregi.
„Ég var boðuð á fund hjá Simon Fuller eftir að hann hlustaði á lögin mín. Hann varð yfir sig hrifinn af einu þeirra, Angels og vildi fá að nota það sem endurkomulag fyrir Spice Girls.“
Boðið að vera með á Spice Girls-plötu
Heiðrún hefur búið í Englandi síðustu 23 ár og á að baki farsælan feril í tónlist. Hún var á samningi hjá Universal Publishing til margra ára og hefur unnið með ýmsum þekktum listamönnum, þar á meðal Swedish House Mafia sem gerðu remix af lagi hennar Beating of my Heart sem hún gaf út með þáverandi hljómsveit sinni Cicada. Einnig var hún fengin til að semja fyrir Spice Girls þegar sveitin hugði á endurkomu fyrir tíu árum. „Ég var boðuð á fund hjá Simon Fuller eftir að hann hlustaði á lögin mín. Hann varð yfir sig hrifinn af einu þeirra, Angels og vildi fá að nota það sem endurkomulag fyrir Spice Girls. Þær voru að gefa út „best of“ plötu og þar áttu að vera tvö ný lög. Þær tóku lagið mitt upp og allt var tilbúið þegar mér var tilkynnt að gamli pródúserinn þeirra fengi mitt pláss, hans lag var allt í einu komið á plötuna,“ segir hún og viðurkennir að það hafi verið hræðileg vonbrigði þegar lagið var fjarlægt af plötunni á síðustu stundu.
Semur bara fyrir sjálfan sig
Heiðrún Anna hefur samið fyrir fleiri stóra aðila á ferlinum og var til að mynd fengin til að semja tónlist fyrir erlenda stórstjörnu, sem hún vill ekki nefna á nafni, fyrir tilstuðlan bresku útgáfunnar EMI. EMI var að hennar sögn ánægt með lagið en stórstjarnan ákvað á endanum að nota það ekki. „Svona er þetta, maður er svo oft næstum búin að meika það,“ segir hún og hlær. „Ég er alls ekki bitur eða leið, en ég missti samt einhvern veginn áhugann á þessu harki. Var líka komin með stóra fjölskyldu og fleira að hugsa um. Þannig að núna, í þessum breytta tónlistarheimi þar sem hver sem er getur gefið út eigið efni, þá sem ég bara fyrir sjálfa mig og það sem ég fíla.“
Horfir meira til Íslands en áður
Eins og fyrr sagði tók Heiðrún Anna þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár. Hún hafði gaman af og segir að eftir keppnina hafi henni fundist vera rétti tíminn til að gefa út nokkur lög úr eigin smiðju, bæði gömul og ný. Eins sé hún farin að horfa meira til Íslands en áður. Hana langi mikið til að fara að gera tónlist með tónlistarfólki hér heima og styrkja tengslin við íslensku senuna. „Já, ég er alltaf til í samstarf. Til dæmis gera remix af lögunum mínum. Það væri mjög gaman,“ segir hún.
Heiðrún á Instagram
Heiðrún á Facebook
Umræðan