Íslenska,danska,þýska og finnska hljómsveitin Vil sendir frá sér nýtt lag og myndband við lagið ‘Hvor drømmene’.
Hljómsveitin er skipuð dönsku söngkonunni Lovis Bechmann og tónlistarmanninum Julius Pollux Rothlaender sem er fæddur í Þýskalandi en hefur verið búsettur á Íslandi síðan 2015. Finnska listakonan Saija Kassinen leikstýrði þessu magnaða myndbandið fyrir lagið ‘Hvor drømmene’.
Tilraunarkennda lagið tilheyrir EP plötunni ‘På den sidste dag’ sem kemur út á vegum þýska plötufyrirtækisins Listen Collective 13. febrúar. Af sömu plötu kemur lagið ‘På den sidste dag’ sem einnig hefur nýlega verið gefið út sem myndband eftir listamanninn Klāvs Liepiņš sem útskrifaðist úr Listaháskólanum Íslands árið 2018.
Hljómsveitin Vil hefur verið virk síðan 2015 og hefur komið víðs vegar fram í Evrópu, meðal annars á hátíðum eins og Fusion Festival, Reeperbahn Festival og á tónleikum í DR Koncerthuset í Kaupmannahöfn.
Vil á Facebook
Umræðan