Árið ’73 spurði Bowie hvort það væri líf á plánetunni Mars og Elon Musk hyggst víst flytja þangað en við hér heima á Íslandi gætum kannski spurt okkur hvort það verði mögulega líft í mars eftir að svartasta skammdeginu líkur.
Nýjasti söngull Teits Magnússonar (sá þriðji af væntanlegri breiðskífu) er óður til glam-rokksins, líðandi stundar og hækkandi sólar. Einnig er komið út glæsilegt myndband við lagið en það er unnið af Æðisgenginu.
Hér er á ferðinni hressandi lag sem á klárlega eftir að fá fólk til að spretta á fætur og dansa.
Teitur Magnússon: lag & texti, söngur, kassagítar, slagverk & útsetning. Skarphéðinn Bergþóruson: texti. Daníel Friðrik Böðvarsson: rafgítar, rafbassi, hljóðgervlar, upptökustjórn, forhljóðblöndun & útsetning. Styrmir Hauksson: hljóðblöndun. Magnús Trygvason Eliassen: trommur. Tumi Árnason: saxófón. Þorleifur Gaukur Davíðsson: sleðagítar & munnharpa. Bryndís Jakobsdóttir: bakraddir. Steingrímur Teague: píanó. Glenn Schick: hljómjöfnun. Umslagsmynd: Jón Sæmundur.