Fyrir skömmu gaf tvíeykið ClubDub út smáskífuna Clubdub ungir snillar.
Tvíeykið samanstendur af þeim Aroni Kristni Jónassyni og Brynjari Barkarssyni. Þetta er þriðja smáskífa drengjanna og er hún frábrugðin þeim eldri að því leyti að nú kemur fjölbreyttur hópur pródúsenta að henni. „Þetta meistaraverk hefur verið í bígerð síðastliðin 2 ár. Við fáum engan inn- blástur frá íslenskum tónlistarmönnum. Við erum bara í alvöru að gera þetta shit” segja þeir félagar um útgáfuna.
Svokallað landslið íslenskra tónlistarmanna var kallað til og úr varð fjögurra laga fjölbreytt smáskífa. Arnar Ingi Ingason (Young Nazareth) hafði yfirumsjón með framleiðslu og hljóðblöndun en Ra:tio, Þormóður Eiríksson, Reynis Snær, Jón Bjarni og Ásgeir Kristján lögðu allir hönd á plóginn. Smáskífan hefur verið í vinnslu síðastliðin tvö ár, í bæði samkomubönnum og sumarstuði. Tónlistin sjálf endurspeglar stuðið.
ClubDub menn hafa skapað sér góðan orðstír sem fjörugir skemmtikraftar og munu þeir spila út um allt land í sumar til þess að fagna smáskífunni.
Umræðan