Hljómsveitin Airloop var stofnuð árið 2006 og hefur síðan þá verið að vinna í sinni fyrstu plötu, Streymi. „
Tónlistin er einhverskonar tilraunakennd blanda af house-tónlist, jazzi og ambient“ segir Gunnar Þór Sigurðsson sem sér um hljóðheim og takta. Aðrir meðlimir Airloop eru Sveinn Sigurður Kjartansson sem spilar á hljómborð og gítar og Sævar Garðarsson sem spilar á trompet.
„Við eigum frekar erfitt með að skilgreina tónlistina, en hún er á vissan hátt mjög sérstök. Ástæðan er sennilega sú að við komum úr mismunandi áttum, svo úr verður tónlistarbræðingur.“ segir Sveinn. „Það er frábært að platan sé loksins tilbúin, og við erum mjög ánægðir með bæði innihaldið og umbúðirnar, en Guðmundur Pétursson sá um grafíska hönnun og Oculus sá um hljóðblöndun og hljóðjöfnun.“
Föstudaginn 6. desember ætlar Airloop að halda heljarinnar útgáfuhóf í plötuversluninni Lucky Records. Útgáfuhófið hefst kl.17:00 og eru meðlimir í óða önn að undirbúa flutning á 1-2 lögum ásamt góðum gestum.
Umræðan