Vetrarljóð Röggu Gröndal verða flutt í streymi í fyrsta sinn í beinni útsendingu frá Langholtskirkju sunnudaginn 22. nóvember 2020 kl: 20:00.
Ragga Gröndal hefur verið með ástsælli tónlistarmönnum á Íslandi frá því hún kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2003. Ragga hefur leitt eigin hljómsveitir, komið fram sem einsöngvari, farið í tónleikaferðalög bæði á Íslandi og í Evrópu og auk þess, komið fram á fjölmörgum tónlistarhátíðum um alla Evrópu. Að koma fram er hennar ástríða og vonar hún að í nýjum veruleika sem við okkur blasir í dag sé enn hægt að njóta lifandi tónlistar þó svo að formið sé á annan hátt.
„Ég er búin að bóka Langholtskirkju og með mér verða Guðmundur Pétursson og Róbert Þórhallsson á þessum einstaka streymisviðburði. Við munum byggja efnisskránna á tónlistinni af disknum Vetrarljóð ásamt öðru spennandi efni sem passar með. Ég sjálf elska þessi ljóð og lög og finnst þau eiga erindi til fólks á öllum aldri. Vetrarljóð er líka mín mesta selda plata frá árinu 2004 og ég veit að lögin eru fyrir löngu orðin ómissandi partur af vetrarmánuðunum hjá mörgum. Ég vona að ég geti hlýjað okkur aðeins um hjartarætur á meðan tónleikahald er í sögulegu lágmarki“ – segir Ragga Gröndal.
Hægt er að kaupa miða á tónleikana HÉR.
Umræðan