JÓLADRAUMUR er útgáfuverkefni með áherslu á ný frumsamin jólalög. Í forsvari er lagasmiðurinn og gítarleikarinn Guðmundur Jónsson.
Nú fyrir þessi jól koma út þrjú glæný lög. Það eru lögin “Jólin þau koma senn” og “Heilög jól” flutt af Írisi Lind Verudóttir söngkonu og lagið “Söngur samviskunnar” sungið af Jóhanni Sigurðarsyni leikara og söngvara, sem kom út fyrir stuttu.
Í fyrra 2020, komu út tveir ópusar er báðir innihalda söngdúetta: Hamingjan festir rætur sem Margrét Eir og Jóhann Sigurðsson syngja og Lítil kerti í myrkum heimi er Salka Sól Eyfeld og Jóhann Sigurðsson syngja. Þeir listamenn sem komu að gerð nýju lagana eru eftirtaldir:
Lögin semur Guðmundur Jónsson og textana semja Kristján Hreinsson, Guðmundur Jónsson og Friðrik Sturluson.
Umræðan