Almenn miðasala á Jólagesti Björgvins hefst á morgun, miðvikudag kl. 12:00 á Tix.is.
Einnig hafa yfirvöld brugðist hratt við og staðfest að tónleikahald verður ekki virðisaukaskylt við það að flytja sig yfir í streymi / pay per view. Og verður því vaskurinn tekinn af og við það lækkar miðaverðið í 3.900 krónur, sem er miðaverðið sem stefnd var að upphaflega.Hér er um að ræða miklar gleðifréttir fyrir allan íslenska menningargeirann og eiga stjórnvöld hrós skilið fyrir að bregðast svona hratt og vel við.
Undirbúningur fyrir Jólagesti Björgvins 2020 gengur vel en þetta er í fyrsta skipti á Íslandi sem svona stór viðburður fer fram í beinni útsendingu án áhorfenda í sal. Verið er að feta nýjar leiðir til að koma með jólin heim til ykkar, um allt land og um allan heim, en tónleikarnir eru aðgengilegir í gegnum streymi og pay per view um alla veröld.
Umræðan