Tónlistarmaðurinn Gísli sendi fyrir skömmu frá sér lagið „Tidal Wave” og er það í bullandi spilun á öllum helstu útvarpsstöðvum landsins.
Gilsi var á samning hjá EMI UK í nokkur ár þar sem hann gaf út meðal annars lagið „How about that” sem naut mikilla vinsælda. Eftir það skemmtilega tímabil fór Gísli að semja og útsetja fyrir aðra, mest í London en líka í Ameríku og Noregi þar sem hann bjó í mörg ár áður en hann fluttist til London. Í London fékk Gílsi að vinna með allskonar skemmtilegu fólki eins og T.d og Mick Jones úr bresku hljómsveitinni The Clash, Breski tónlistarkonunni Carhey Dennis og Duffy svo fátt sé nefnt.
Gísli vinnur nú að nýrri plötu sem mun vera hans fjórða plata í fullri lengd og er væntanleg seinna á þessu ári. Platan hefur fengið heitið The Skeleton Crew, sem þýðir lágmarks mannskapur til að framkvæma hluti eins og flytja flugvélar eða skip. „Mér fannst þetta viðeigandi þar sem ég spila á öll hljóðfærin á plötunni sjálfur, tek allt upp og mixa heima í stúdíóinu mínu í Höfnum á Reykjanesi.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið og hlíða á lagið „How About That.”
Umræðan