Útvarp Úlala er nýjasta plata tónlistarmannsins Auðuns Lútherssonar sem er betur þekktur sem Auður. Platan inniheldur 5 lög úr ólíkum áttum sem Auður samdi og tók upp.
Lögin eru samin á Íslandi og í Los Angeles en Auður flutti til Bandaríkjanna í byrjun árs. Þar hefur hann haft ýmis járn í eldinum til að mynda samstarf með söngkonunni Diarra Sylla, Sally Han, útsetningu fyrir hljómsveitina Bella Dose ásamt því að koma sjálfur fram.
„Útvarp Úlala er útvarpsstöð í hliðstæðum alheimi. Hún sameinar öll lögin sem mig hefur langað til að gefa út undanfarið. Ég samdi öll lögin sjálfur en fékk frábært fólk til þess að spila inn á plötuna. Eitt lagið er samið frammi á gangi í Þjóðleikhúsinu, annað á Hverfisgötu, svo í Hafnarfirði og hér í Los Angeles. Lögin, tónlistarstefnurnar, fortíðin og flugeldar renna í eitt á Útvarp Úlala.” Segir Auður.

Á meðal þeirra sem koma að plötunni eru Rubin Pollock úr Kaleo, Ari Bragi Kárason, Sigtryggur Baldursson, Ellert Björgvin Schram, Daníel Friðrik Böðvarsson, Eygló Hilmarsdóttir, Magnús Öder og Arnar Guðjónsson.
Plötuumslag Útvarps Úlala vann Auður með ljósmyndaranum Ari Michelson í Los Angeles en hann hefur unnið með listamönnum á borð við Justin Timberlake, Timbaland, Lenny Kravitz, Brendan Fraser og Mindy Kaling. Myndvinnsla var unnin af Emerald M og Ágúst Elí.
Hljóðblöndun var í höndum Magnús Öder og Arnars Guðjónssonar og mastering hjá Glenn Schick. Útvarp Úlala er nú fáanleg á öllum streymisveitum vínyl útgáfa kemur út síðar.
Umræðan