CAN YOU BREATHE ? er fyrsti viðburður sinnar tegundar sem haldinn er á Íslandi. Nicolai Engelbrecht, frumkvöðull á sviði öndunartækni og höfundur bókarinnar Gangsters ‘n Gurus, mun leiða heilandi umbreytingarferli í öruggu rými, sem byggir á hreinustu auðlind okkar allra, andadrættinum.
Í yfir áratug hefur Nicolai fylgt þúsundum einstaklinga um allan heim í gegnum öndunartækni sína, Metatronic Breathing Method, sem vinnur t.a.m. gegn tilfinningalegu ójafnvægi, áföllum, kvíða, neikvæðum hegðunarmynstrum og fíkn. Nicolai hefur hlotið UNESCO friðarverðlaun ungmenna fyrir störf sín, auk þess sem hann leiðir nú óhefðbundna endurhæfingu fanga í öllum fangelsum landsins kostað af íslenska ríkinu.
Nicolai mun sameina krafta sína með fyrrum lögfræðingnum Söru Odds, nú ráðgjafa, markþjálfa og shaman, plötusnúðnum sem allir elska DJ Margeiri og Arnbjörgu sem mun leiða yfir 20 gong spilara á þessum einstaka 3.5 klukkustunda viðburði. Auk þeirra mun fjöldi annara heilara og tónlistamanna sameina töfra sína til þess eins að endurnæra þig, hækka vitund þína og skerpa skýrleika þinn sem aldrei fyrr.
Umræðan