Enski tónlistarmaðurinn Tom Hannay sendir frá sér Fade out of view, annað lag af plötunni Dog Days sem kemur út í sumar. Tom er frá Bolton á Englandi en starfar í Reykjavík og hefur búið hér á landi með hléum frá árinu 2008. Þó að hann sé minna þekktur hér á landi á hann hlustendur um allan heim, en Instagram-síða hans telur um 11 þúsund aðdáendur.
Lagið Fade out of View, er að sögn Toms, undir sterkum áhrif frá gospeltónlist og breskri rokktónlist sjöunda áratugarins. Tom segir að lagið fjalli um „samtalið við eigum öll við fólkið sem við viljum helst tala við, í huganum. Við eigum þessi samtöl allan daginn í höfðinu á okkur, við einhverja manneskju. En svo erum við svo ringluð þegar við hittum viðkomandi í raunheimum vegna þess að þessi einstaklingur sem við vorum að tala við allan tímann, er ekki til heldur uppspuni í höfðinu á okkur.”
Texti lagsins er því mjög persónulegur fyrir Tom, en hann segir að þar sé hann í raun að segja fyrirgefðu, en ekki við viðmælandann heldur við sjálfan sig. Lagið og textinn er alfarið eftir hann sjálfan, en hann nefnir að hafa þurft að útsetja lagið nokkrum sinnum frá grunni. Þá má geta þess að Tom spilar einnig sjálfur á vel flest hljóðfærin. Lagið er tekið upp í Stúdíó E7 á Granda í Reykjavík. Lagið er aðgengilegt á Spotify-síðu Toms. Myndband við lagið í leikstjórn Tom Hannay og belgíska ljósmyndarans Frank Nieuwenhuis er væntanlegt í september.
Umræðan