Jón Gabríel Lorange eða Tss eins og hann kallar sig var að senda frá sér plötuna Rhino.
Platan inniheldur 6 lög sem eru öll samin, tekin upp og hljóðblönduð af Jóni á sumarmánuðum 2019. Ólíkt plötunni High Tide Low Tide sem kom út í apríl á þessu ári, er Rhino í grunninn unnin með hljóðgervlum en hljóðheimur High Tide Low Tide einkennist mest af gítarspili. Platan er virkilega frábær og ætti að heyrast á hverju heimili. Ekki hika við að skella á play lesandi góður, þú sérð ekki eftir því! Plötuna má bæði finna á Bandcamp & Spotify.
Tss á Facebook
Tss á Instagram
Umræðan