Hljómsveitin Rock Paper Sisters sendir á föstudaginn frá sér myndband og nýtt lag sem ber heitið Restless.
Þetta er fyrsta lagið sem sveitin gefur út í þessum stíl og er í anda 70´s Rokk á borð við Led zeppelin, lynnyrd skynnyrd , stoner rock og southren Rock. Óskar Logi úr hljómsveitinni The Vintage Caravan er sérlegur gestur í laginu og spilar trillt gítar sóló af gamla skólanum og það af sinni alkunnu snilld! Blásið verður til veislu á morgun, fimmtudaginn 5. september í Gym og Tonic sal KEX Hostels kl 20:00. Frítt öl fyrir fyrstu gestina og frumflutningur á bæði lagi og Myndbandi! Ekki hika við að láta sjá þig og svo er frítt inn sem er ávallt mikill kostur!
Facebook viðburðinn má sjá hér.
Umræðan