Allar hljómplötuverslanir í Reykjavík taka höndum saman og bjóða upp á tónlistarveislu þrjá laugardaga í sumar undir heitinu „Elskum plötubúðir.“
Dagsetningarnar eru 11. júlí og 15. og 29. ágúst. Verslanirnar eru 12 Tónar, Lucky Records, Smekkleysa, Reykjavík Record Shop og Geisladiskabúð Valda (sem tekur þátt einn dag). Á laugardaginn er dagskráin sem hér segir:
14.00 Gugusar @ Mengi / Smekkleysa
15.00 GDRN @ Lucky Records
16:00 Þórir Georg @ Reykjavík Record Shop
17.00 Kælan mikla @ 12 Tónar
Hver viðburðurinn rekur annan þannig að fólk getur gengið á milli verslana og notið allra tónlistaratriðanna, svolítið eins og að vera á lítilli tónlistarhátíð. Verkefnið er unnið í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og með stuðningi Sumarborgarinnar, Félags hljómplötuframleiðenda, Félags íslenskra hljómlistarmanna og STEFs.
Á dögunum kom út skýrsla um áhrif COVID-19 á íslenskan tónlistariðnað og þar kemur fram að Reykjavík er svo heppin að vera ein af þeim borgum sem enn státar af flottum hljómplötuverslunum og hafa sumar þeirra jafnvel komist á lista yfir bestu plötubúðir í heimi. Þessar verslanir gegna mikilvægu hlutverki í hagkerfi tónlistarlífsins en einnig gegna þær mikilvægu samfélaglegu hlutverki því þangað koma t.d. ferðamenn til að fræðast um tónlistarlífið og fá upplýsingar um viðburði sem þeir geta sótt. Vegna áhrifa COVID-19 og fækkunar ferðamanna er ljóst að rekstur þessara verslana sem var viðkvæmur fyrir verður afar erfiður á næstu mánuðum. Sumarið í ár verður ekki sá gjöfuli tími sem það hefur verið undanfarin ár þegar höfuðborgin hefur verið full af ferðamönnum sem margir hverjir fara í plötubúðir til að kynnast tónlistarlífinu.
Með verkefninu eru íslenskir tónlistarunnendur hvattir til að sýna plötubúðunum ást og stuðning í verki á óvenjulegum tímum.
Viðburðurinn á Facebook
Tónlistarborgin á Facebook
Umræðan