Tónlistarmaðurinn Yambi hefur sent frá sér nýtt myndband sem er algjört augnakonfekt. Þar er ekki aðeins að finna nýtt efni frá honum heldur einnig einstakt myndefni af hálendi Íslands. Um er að ræða gjörning sem fangar augu og eyru og felur í sér tónlistarveislu á hálendinu.
Listamaðurinn Bjarni Freyr Pétursson (Yambi) hefur gefið út tónlist um nokkurt skeið. Hann hefur undanfarið unnið að nýju efni en hluta af því hefur hann gert með kólumbíska listamanninum Jorge Duarte. Sá hefur starfað undanfarin ár sem pródúser í Boston í Bandaríkjunum og verið plötusnúður á mörgum af stærstu skemmtistöðunum þar.
Í myndbandinu má heyra ný lög og svo eldra efni Yamba og lög annarra listamanna sem hann hefur verið að hlusta á. Í myndbandinu gefur jafnframt að líta stórbrotna liti íslensku náttúrunnar. Andstæðurnar í náttúrunni eru einstakar þar sem mosi og ís mætast og gígar og fjallstindar haldast nær í hendur.
Þeir félagar lögðu land undir fót við vinnslu myndbandsins og fengu meðal annars í lið með sér Björn Steinbekk sem skaut hluta af myndbandinu með dróna.
Yambi stefnir á útgáfu nýs efnis eftir áramótin sem hann bíður spenntur eftir að deila öllum sem vilja njóta.
Umræðan