Steinar Fjeldsted hjá Albumm.is fer alla fimmtudaga yfir það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum hjá Ósk Gunnars á FM957.
Að þessu sinni eru það Rapparinn Daniil en hann sendi í gær frá sér lagið Ef þeir vilja beef, en Joey Christ kemur einnig fram í laginu. Prins Póló og Moses Hightower leiða saman krafta sína og gefa út lagið Maðkur í Mysunni. Svo er það Nýja, Íslenska rokkhljómsveitin Tragically Unknown hefur gefið út sitt fyrsta lag, Villain Origin Story.
Lagið er fyrsta smáskífa hljómsveitarinnar og jafnframt fyrsta útgefna lagið af fyrstu plötu sveitarinnar, sem væntanleg er í haust.
Hægt er að hlusta á tónlistarmínútur HÉR. Ekki missa af Steinari Fjeldsted næsta fimmtudag í hádeginu á FM 957.
Umræðan