PartyZone, oft nefndur dansþáttur þjóðarinnar, hreiðrar um sig á ný á Rás 2 á laugardagskvöldum í júlí.
Um er að ræða 4 þátta seríu þar sem ætlunin er að ráðast í ansi stórt verkefni, 40 ár af danstónlist. Hver þáttur verður tileinkaður einum áratug og verða sérvalin lög spiluð í tímaröð. Lögin eiga það sameiginlegt að hafa verið slagarar á dansgólfum og dálæti plötusnúðanna. Sem fyrr er enginn PartyZone þáttur án plötusnúða og munu plötusnúðar sem áberandi voru á viðkomandi áratug koma í heimsókn, segja sögur og taka stutt dj sett.
Á laugardinn sem leið var farið yfir tíunda áratuginn en margir telja það gullárin í danstónlist. Rave og dúndrandi bassi tók öll völd og skemmtistaðurinn Rósenberg (í kjallara tunglsins) var mekka danstónlistarinnar. Þátturinn er virkilega þéttur og hægt er að hlusta á hann hér að neðan:
Umræðan