Tónleikarnir með Andrea Bocelli sem áttu að fara fram 23. maí í Kórnum hafa verið færðir til 3. október 2020, vegna útbreiðslu COVID-19 vírusins og afleiðinga hans.
Allir miðar gilda áfram á tónleikana 3. október og það þarf ekki að sækja nýja miða. Ef þessi nýja dagsetning hentar ekki þá eiga miðahafar rétt á fullri endurgreiðslu. Til þess að fá endurgreitt þarf að fara fram á það við miðasölu með því að senda tölvupóst á info@tix.is.
Sena biðst velvirðingar á óþægindunum sem þessi breyting kann að valda.