Covid-19 hefur umturnað heimsbyggðinni og á köflum er þetta eins og við séum stödd inn í einhverri súrrealískri kvikmynd eftir David Lynch.
Fólk heldur sér í hæfilegri fjarlægð frá hvort öðru, nánast allt er lokað og læst og fólk er að finna nýjar leiðir til að hittast og mynda tengsl. Margir finna fyrir tekjutapi og ekki síst tónlistarfólk, eigendur hljóðvera og tónleikastaða.
Hljómsveitin Stafrænn Hákon deyr ekki ráðalaus en hún tók á það ráð að hittast í gegnum alnetið. Allir meðlimir sveitarinnar voru á sitthvorum staðnum enda ekki ráðlagt að hittast á þessum skrítnu tímum. Sveitin tók lagið Bræla sem er af plötunni Eternal Horse sem kom út árið 2015.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið:
Umræðan