Tónlistarmaðurinn Bjarni Ben sendi fyrir skemmstu frá sér nýtt lag, Heartbreakers, og myndband við lagið.
Þetta er fyrsta lagið sem hann gefur út undir eigin nafni. „Ég er í raftónlistarnámi í Berlín og tók myndbandið upp með kærustunni minni í sóttkví í Mývatnssveit,“ segir Bjarni, en hann er um þessar mundir að klára indie/synth-poppplötu sem kemur út í sumar og ber heitið „A Series of Close Calls.”
Kappinn er afar iðinn við tónlistarsköpun en hann sendir frá sér nýtt lag á næstu dögum. Þangað til látum við þetta duga og hækkum í græjunum. Hér fyrir neðan má sjá myndband við lagið en Bjarni sjálfur og Toni Agostinelli eiga heiðurinn af því.
Bjarni Ben á Facebook
Umræðan