Hilmar Þór Árnason hefur verið viðloðinn íslensku tónlistarsenuna svo árum skiptir en í dag gengur hann undir nafninu Street Preacher.
Snemma á tíunda áratugnum var Hilmar mjög áberandi í íslensku klúbbasenunni en hann stóð all oft vaktina á bakvið plötuspilarana og sá til þess að fólk fékk nýjustu taktana beint í æð. Það er í raun ótrúlegt hvað þessi hæfileikaríki kappi hfur áorkað en hann hefur einnig útsett fyrir aðra, flutt inn erlent tónlistarfólk og skipulagt heljarinnar klúbbakvöld svo fátt sé nefnt.
Hilmar er búsettur á Ítalíu en hann var að senda frá sér magnað mix fyrir “online” sjónvarpsstöðina Behind The Store. Mixið er allt tekið upp í fjárhúsi og skapar það virkilega einstaka upplifun. Ekki hika við að skella á play, þetta er snilld og okkur hlakkar mikið til að heyra meira frá meistara Street Preacher!
[mixcloud https://www.mixcloud.com/behind_the_store/street-preacher-behind-the-store-24/ width=100% height=120 hide_cover=1 light=1]
Umræðan