Íslenska / Sænska dúóið Baula var að senda frá sér EP plötuna Drought en sveitina skipa þau Ísak Ásgeirsson og Karolina Thunberg.
„Baula varð til í kjölfar þess að sveitin spilaði saman í gamanleikhúsi. „Við héldum að gamanið héldi áfram en gátum ekki haldið aftur af sorginni. Ætli við séum ekki bara svolítið eins og tveir niðurdregnir trúðar.“ Baula, sem sækir innblástur í sveitirnar Raveonettes og Man Man. Drought sem kemur út á vegum Youth Recordings er vægast sagt frábær en afar auðvelt er að sogast inn í andrúmsloft sveitarinnar. Við mælum eindregið með að þú skellir á play og þjótir inn í framúrskarandi hljóðheim sem er á köflum afar rokkaður.
Umræðan