Albumm.is!
  • Tónlist
  • Menning
  • Viðburðir
  • AlbummTV
  • Jón Jónsson og GDRN leiða saman krafta sína
    • Posted on 15.01.21
  • „Loksins rétti tíminn til að gefa þetta út”
    • Posted on 15.01.21
  • Bubbi sendir frá sér nýtt lag
    • Posted on 14.01.21
  • Fimm uppáhalds plötur Silju Rósar
    • Posted on 14.01.2101.14.2021
  • Narmek með nýja plötu – Hart og dimmt teknó
    • Posted on 14.01.2101.15.2021
Sendu okkur grein
Albumm.is!
Albumm.is!
  • Tónlist
  • Menning
  • Viðburðir
  • AlbummTV
  • Tónlist

Tilnefningar til Kraumsverðlaunanna – tónlist úr öllum áttum

  • Posted on 11.30.202012.01.2020
  • Ritstjórn Albumm

Kraumsverðlaunin verða afhent í þrettánda sinn í næsta mánuði þar sem verðlaun verða veitt fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika.

Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa verðlaunin til þessa eru Auður, Cell7, Daníel Bjarnason, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Lay Low, Mammút, Ólöf Arnalds, Retro Stefson og Sóley.

Dómnefnd verðlaunanna hefur nú valið tilnefningar til Kraumsverðlaunanna í ár, hinn svokallaða Kraumslista, og þar er að finna tónlist úr öllum áttum. Tuttugu hljómsveitir og listamenn eru tilnefnd fyrir plötur sínar í ár, meðal annars Bríet, Cyber, Gugusar og Yagya. Á listanum má finna hinar ýmsu tónlistarstefnur og strauma; popp og rokktónlist, teknó, hip hop, jazz, tónverka- og tilraunatónlist. 

Greinilegt er að mikil gróska er í íslensku tónlistarlífi hvað útgáfurstafsemi varðar, enda fór dómnefndin yfir og hlustaði á 439 hljómplötur og útgáfur sem komu út á árinu við val sit. Hún mun nú velja sex breiðskífur af þeim sem nú hafa verið tilnefndar er hljóta munu Kraumsverðlaunin 2020.

Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa rúmlega sjötíu listamenn og hljómsveitir hlotið verðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferli sínum. Það er Aurora velgerðarsjóður sem stendur að Kraumsverðlaununum. 

Tilnefningar til Kraumsverðlaunanna 2020:

0 – Entity

Andartak – Constructive Metabolism

Asalaus – Aaleysing

Bára Gísla – HIBER

Bríet – Kveðja, Bríet

Buspin Jieper – VHS Volcanic / Harmonic / Sounds

Celebs – Tálvon hinna efnilegu

Cyber – Vacation

Gugusar – Listen to this Twice

Ingibjörg Turchi – Meliae

K.óla – Plastprinsessan

Magnús Jóhann – Without Listening

Mengun – Þrettán tólf

Salóme Katrín – Water

Skoffín – Skoffín hentar íslenskum aðstæðum

Supersport! – Dog Run EP

Tucker Carlson’s Jonestown Massacre – Ingilín

Ultraflex – Visions of Ultraflex

Volruptus – First Contact

Yagya – Old Dreams And Memories

Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af níu manna dómnefnd skipuð fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Arnar Eggert Thoroddsen, Helga Þórey Jónsdóttir, Maria Lilja Thrastardottir Kemp, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Tanya Lind, Trausti Júlíusson og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir.

Aðstandandi Kraumslistans og Kraumsverðlaunanna er tónlistarsjóðurinn Kraumur sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðasjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Auk þess að starfrækja Kraum styður Aurora velgerðarsjóður við þróun og menningu hérlendis sem erlendis í gegnum margvísleg verkefni sem er ætlað að örva samfélög á sjálfbæran máta.

Total
3
Shares
Deila 3
Tísta 0
Previous Article
  • Tónlist

Skærustu stjörnur landsins í nýju jólalagi

  • Posted on 11.28.202011.30.2020
  • Ritstjórn Albumm
View Post
Next Article
  • Tónlist

Einkasamtal sem tekst á við sorg og erfiða lífsreynslu

  • Posted on 12.01.202012.02.2020
  • Ritstjórn Albumm
View Post
Þér gæti einnig líkað við
View Post
  • Tónlist

Fimm uppáhalds plötur Silju Rósar

  • Posted on 01.14.202101.14.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Söluhæstu plötur og vinsælustu lög ársins 2020

  • Posted on 01.08.202101.11.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

„Hef alltaf haft sterka tengingu til Hawaii”

  • Posted on 01.06.202101.08.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Lá beint við að hanga uppí stúdíói og fikta sig áfram

  • Posted on 01.06.202101.08.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

amiina gefur út tvö jólalög

  • Posted on 12.18.202012.21.2020
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Bóndi og hestakona af guðsnáð

  • Posted on 12.17.202012.20.2020
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Fimm upáhalds plötur Margrétar Rúnarsdóttur

  • Posted on 12.16.202012.21.2020
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Hitablásnir hittarar og naglalakkaðar neglur

  • Posted on 12.14.202012.15.2020
  • Ritstjórn Albumm
  • Mest lesið
  • vikan
  • Mánudagsplaylisti Guðfinnu Mjallar Mánudagsplaylisti Guðfinnu Mjallar
  • „Loksins rétti tíminn til að gefa þetta út" „Loksins rétti tíminn til að ...
  • Narmek með nýja plötu - Hart og dimmt teknó Narmek með nýja plötu – ...
  • Fimm uppáhalds plötur Silju Rósar Fimm uppáhalds plötur Silju Rósar
  • Jón Jónsson og GDRN leiða saman krafta sína Jón Jónsson og GDRN leiða ...
  • Alchemia boða endurreisn rokkssins Alchemia boða endurreisn rokkssins
  • Narmek með nýja plötu - Hart og dimmt teknó Narmek með nýja plötu – Hart og dimmt teknó
  • Fimm uppáhalds plötur Silju Rósar Fimm uppáhalds plötur Silju Rósar
  • Mánudagsplaylisti Guðfinnu Mjallar Mánudagsplaylisti Guðfinnu Mjallar
  • „okkur langaði að setja þetta undir eitt þak" „okkur langaði að setja þetta undir eitt þak”
Albumm.is!
  • Tónlist
  • Menning
  • Viðburðir
  • AlbummTV
Skúlagata 1 | 101 Reykjavík 2. hæð | Sími: 612-9150

Input your search keywords and press Enter.