Íslensku Tónlistarverðlaunin fara fram miðvikudagskvöldið 10. mars næstkomandi. Það er ljóst að hátíðin verður ekki fjölmennur eins og venja er en að sjálfsögðu verður öllu sjónvarpað. Búið er að framlengja lokadagsetningu tilnefninga en hann renuur út í kvöld, sunnudaginn 17. Janúar kl 12:00.
Útgáfa íslenskrar tónlistar var í miklum blóma árið 2020 og vafalaust margir þakklátir íslensku tónlistarfólki fyrir öll lögin sem gerðu lífið ögn bærilegra þetta sérstaka ár. Nú geta höfundar, útgefendur og aðrir hagsmunaaðilar sent inn tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna en lokadagsetningu innsendinga rennur út í kvöld, sunnudaginn 17. Janúar kl 12:00.
Það verður blásið til heljarinnar veislu (eins og lögleifa), þar sem íslenskt tónlistarfólk getur fagnað uppskeru síðasta árs með bravúr og landsmenn allir geta samfagnað og upplifað alla þá blómstrandi tónlistarmenningu sem við sem þjóð vorum svo heppin að búa við á þessa ömurðarári sem 2020 var fyrir svo marga.
Í ár hafa skráningargjöld verið felld niður, sem er mikill kostur. Skilmálar og hlekkur fyrir innsendingar er á heimasíðu Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Fylgstu með Íslensku Tónlistarverðlaununum á Facebook og Instagram