ALBUMM
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Heim Music

„Tilfinningin þegar maður er ennþá að reyna að halda kúlinu”

Ritstjórn Albumm.is Eftir Ritstjórn Albumm.is
11. February, 2022
í Music
0 0
0
„Tilfinningin þegar maður er ennþá að reyna að halda kúlinu”
Deila á FacebookDeila á Twitter

nýtt lag frá tónlistarkonunni RAKEL kom út í dag og heitir það Something og er þriðji singúll af væntanlegu samstarfsverkefni þriggja ungra og upprennandi tónlistarkvenna, en auk Rakelar standa að því hin danska ZAAR og Salóme Katrín frá Ísafirði. 

Um er að ræða svokallaða „split” skífu, líkt og þekkist helst úr pönk heiminum, en gripurinn heitir While We Wait og kemur út stafrænt 25. febrúar og svo á snarkandi fallegum vínyl stuttu síðar.

„Lagið er algjört ástarlag. Ég samdi það þegar ég var að byrja í nýju sambandi og það lýsir kannski svolítið tilfinningunni þegar maður er ennþá smá að reyna að halda kúlinu og ekki alveg tilbúinn til þess að segja allt það sem maður er að hugsa upphátt. Svo lagið var svona tímabundin útrás fyrir allar þessar viðkvæmu og kjánalegu tilfinningar. Ég átti smá erfitt með að deila laginu með fólki til að byrja með af því að það var svo fullt af nýjum og viðkvæmum tilfinningum. Á endanum safnaði ég upp kjarki og fór með það í heimsókn til góðs vinar míns og tónlistarmanns, Axels Flóvent. Mig langaði til þess að lagið yrði bæði hljóðlátt og kraftmikið á sama tíma, svolítið eins og tilfinningarnar mínar á þessum tíma. Þær voru mjög háværar og sterkar en á sama tíma ekki tilbúnar til þess að berskjaldast, mig langaði til þess að reyna að spegla það í hljóðheiminum. Við Axel komum laginu fyrir í einhverskonar shoegaze heimi og síðan tók ég það upp með öðrum hæfileika vini, Hafsteini Þráinssyni, en hann spilar á gítar og bassa í laginu. Svo má ekki gleyma Svanhildi Lóu, en hún spilaði á trommur”

Rakel Sigurðardóttir er fædd og uppalin á Akureyri. Hún hóf fiðlunám sex ára gömul við Tónlistarskólann á Akureyri og jazz söngnám síðar meir. Árið 2015 flutti hún til Reykjavíkur og hélt áfram tónlistarnámi við tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist þaðan vorið 2020.

Rakel hefur komið fram með ýmsu tónlistarfólki í gegnum árin en hóf nýlega að gefa út sína eigin tónlist. Árið 2021 gaf hún út sína fyrstu stuttskífu, Nothing Ever Changes, sem fékk góðar undirtektir. Lagið Our Favourite Line komst inn á vinsældalista Rásar 2 og á toppinn á vinsældalistanum hjá X-ið 977. Hún gaf einnig út lagið Ég var að spá með JóaPé og CeaseTone og hlaut það lag miklar vinsældir, en það lag er einmitt tilnefnt sem lag ársins á Hlustendaverðlaununum. RAKEL er þar einnig tilnefnd í tveimur flokkum, sem nýliði ársins og söngkona ársins.

Tengdar Greinar

Angel on one shoulder and demon on the other
Music

Angel on one shoulder and demon on the other

Today, Scandinavian alternative folk artist Freyr returns with the single “Abandoned Places,” his first new music since 2021. A...

Eftir Álfrún Kolbrúnardóttir
18. January, 2023
 ‘Fuck It’ is an anthem to freedom
Music

 ‘Fuck It’ is an anthem to freedom

 ‘Fuck It’ first released in December 2019, is an anthem to freedom. The music video is an expression of...

Eftir Álfrún Kolbrúnardóttir
18. January, 2023
Their mother is the best musician in the world
Music

Their mother is the best musician in the world

Thelma Byrd recently released her album ,,2022’’ and the album is Thelma’s first solo album. The album is primarily...

Eftir Álfrún Kolbrúnardóttir
18. January, 2023
Message’s that affect your soul
Music

Message’s that affect your soul

,,Leiddu mig í ljósið'' meaning ,,Guide me to the light'' is a song just released by Baldur Einarsson. The...

Eftir Álfrún Kolbrúnardóttir
16. January, 2023
Næsta frétt
Verkalýðslög og drykkjuvísur helsti innblásturinn

Verkalýðslög og drykkjuvísur helsti innblásturinn

Umræðan

albumm@albumm.is
steini@albumm.is
Sími: 768-8606
Faxafen 10, 108 Reykjavík

VALMYND

  • TÓNLIST
  • MENNING
  • ALBUMM TV
  • INNLIT
Albumm.is © 2021 Allur réttur áskilinn | Íslandsvefir hönnuðu og hýsa þennan vef.
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV

© 2021 Albumm.is - Allur réttur áskilinn

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In

Add New Playlist