Tónlistarkonan Emilia Anna gefur út nýtt lag sem ber heitið ‘Tearing me apart’. Lagið varð fljótt til og unnið með Degi Snæ sem sá um produse, mix og master. Emilia Anna segist loksins vera komin með litla Studio aðstöðu sjálf sem hafði verið langþráður draumur og að það sé frábært verkefni að fá að vinna sig áfram í græjunum.
”Tearing me apart’ er lag sem ég hef séð fyrir mér lengi, tilfinning sem hefur setið á mér og ég mun örugglega koma til með að segja söguna mína hægt og örugglega með tónlistinni. Textarnir mínir eiga sér ennþá allir persónulegar ástæður og það er algjör heilun fyrir mig að geta verið í Studio-inu og fengið útrás.” – Emilia
Umræðan