Tónlistarkonan Fever Dream sendi nýverið frá sér brakandi ferskt lag sem ber heitið Fake.
Fever Dream eða Vigdís, eins og hún heitir réttu nafni, er búsett í Berlín og segir hún að borgin hafi klárlega áhrif á tónlistarsköpun sína. Vigdís hefur að undanförnu verið ansi dugleg að senda frá sér lög og hafa þau fengið glimrandi viðtökur. Tónlist Fever Dream má lýsa sem hipphoppi með dassi af dökku tvisti og grípandi melódíum.
Umræðan