Regnbogans stræti kemur út í dag, 9. ágúst og verður til sölu í helstu hljómplötuverslunum og fáanleg á öllum helstu streymisveitum.
Bubbi Morthens (Ásbjörn Kristinsson Morthens) hefur verið einn ástsælasti tónlistarmaður landsins um áratuga skeið. Tónlistarferill hans hófst með plötunni, Ísbjarnarblús sem kom út árið 1980 og náði miklum vinsældum. Hann fór fyrir hljómsveitunum Utangarðsmönnum og Egó á níunda áratugnum og alla tíð síðan hefur hann verið gríðarlega afkastamikill við laga- og textasmíðar, tónlistarútgáfu og tónleikahald. Hann á þrjátíu og tvær hljóðversplötur að baki og hundruð laga sem mörg hver hafa fest sig rækilega í sessi hjá þjóðinni.
Regnbogans stræti er þrítugasta og þriðja hljóðversplata Bubba en á henni eru 11 lög, allt frá hugljúfum dægurlögum og yfir í þétt rokk. Nú þegar hafa komið út þrjú lög af plötunni, Velkomin, Án þín sem Bubbi syngur ásamt Katrínu Halldóru Sigurðardóttur og nú síðast Límdu saman heiminn minn.
Bubbi vann plötuna ásamt einvala liði tónlistarfólks, það voru þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari sem einnig stjórnaði upptökum, Hjörtur Ingvi Jóhannsson hljómborðsleikari, Örn Eldjárn gítarleikari, Aron Steinn Ásbjarnarson saxófónleikari og Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommari. Auk þeirra syngja Elísabet Ormslev, Zöe, Rósa Björk Ómarsdóttir, Valdimar Guðmundsson og Stefanía Svavars bakraddir á plötunni. Arnþór Örlygsson Lind sá um hljóðblöndun og hljóðjöfnun.
Einnig er hægt að nálgast plötuna í vefbúð Öldu Music á aldamusic.is.
Bubbi Morthens á Facebook
Bubbi Morthens á Instagram
Umræðan