Dagana 16.-18. júni verður sjálfstæði Íslendinga fagnað með reisn á Húrra en þá fer fram hátíðin Liberty Fest.
16. júní kemur franski tónlistarmaðurinn UFO95 í fyrsta sinnfram á Íslandi, daginn fyrir Þjóðhátíðardag:. UFO95 er að mörgum talinn einn áhugaverðasti techno listamaður dagsins í dag. Að sögn Íslands Vinarins, Blawan þá er UFO95 efstur á blaði þegar kemur að eftirtekt í techno senunni. UFO95 er aðal númerið “Headliner” á Berghain 24.06 á sérstöku “Mamatoldyah” kvöldi, en það er útgáfufyrirtæki í eigu Anetha sem var fyrsta útgáfan að gefa kappann út. En eins og hefur komið fram spilar UFO95 á Íslandi á Liberty Fest 16.júni næstkomandi.
Einnig kemur fram íslenski guðfaðir Drum & Bass senunnar, sá sem var hvað mest áberandi í Reif senu Íslands í hennar upphafi, Herra Agzilla sjálfur en hann hefur gefið út á einu stærsta Drum & Bass plötuútgáfufyrirtæki heims , Metalheadz,sem er í eigu Goldie. Ewok, einn að forsprökkum Plútó flokksins og fremsti maður Breakbeat.is sem var og hét, mun einnig spila með Agzilla en þeir félagarnir munu fara um víðan völl og jafnvel taka sérstakt B2B saman ef að veður leyfir.
LaFontaine, oft kallaður Techno Barónn Íslands mun enda kvöldið með svokölluðu Hyrbrid/liveset. LaFontaine var einmitt að gefa út hjá sjálfum Luke Slater á plötuútgafunni hans Mote- evolver, en það þykir mikill heiður innan Techno Senunnar.

17. Júní snýr Exos loksins aftur til landsins og spilar í fyrsta sinn á Íslandi síðan í Desember. Einn vinsælasti plötusnúður Íslandssögunar DJ Yamaho mun einnig taka techno sett á þessu frábæra kvöldi en þetta er einmitt Þjóðhátíðardagur íslendinga. Samwise, maðurinn á bakvið Volume mun þeyta eðal minimal-techno tónum ofan í dansþyrsta gesti. En hinn óviðjafnalegI Jamesen mun kickstarta kvöldinu með sveimtónlist eins og hún gerist best.

18. Júni mun óskabarn þjóðarinnar, hinn heittelskaði Oculus, taka ykkur í annan heim eins og honum er líkt. Biggi Veira, maðurinn á bakvið Gus Gus tekur svo við en þeir munu reyna á skemmtilegt Back to Back session í bland við sín eigin sett. Rebecca Goldberg mun svo enda kvöldið sem stæl.
Fram koma: UFO95, Exos, Biggi Veir, Rebecca Goldberg, Oculus, Agzilla, DJ Yamaho, LaFontaine, Ewok, Samwise, Jamesen og Sideproject.
Hægt er að nálgast miða á TIX.is.
Umræðan