Albumm.is!
  • Tónlist
  • Menning
  • Viðburðir
  • AlbummTV
  • „Það var kominn tími á að gera teknó“
    • Posted on 26.02.2102.26.2021
  • ZÖE gefur út Feed The Wolves
    • Posted on 26.02.21
  • Toymachine sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu
    • Posted on 25.02.2102.25.2021
  • „Ég er umkringdur liði en samt einmanna”
    • Posted on 25.02.2102.26.2021
  • Anna Magga sendir frá sér lagið Red flags
    • Posted on 24.02.2102.26.2021
Sendu okkur grein
Albumm.is!
Albumm.is!
  • Tónlist
  • Menning
  • Viðburðir
  • AlbummTV
  • Tónlist

Þreyttur á heimsku mannanna

  • Posted on 02.16.202102.22.2021
  • Ritstjórn Albumm

Listamaðurinn Víðir Mýrmann Thrastarson var að gefa út plötuna, Kveður Norna Kalda Raust, undir listamannsnafninu Sorg. Sagan á bakvið plötuna er stórmerkileg og kom hún til hans eins og þruma úr heiðskíru lofti en allir textarnir á plötunni voru hripaði niður á þremur dögum.

„Það var alltaf að trufla mig eitthvað svo allt í einu kom sagan til mín. Sá þetta fyrir mér sjónrænt og eitthvað tók við. Það eru 10 lög á plötunni en 8 textar frá Sorg, eitt lagið er Sofðu unga ástin mín og hitt er Erla góða Erla, allt skráð eftir lögum og reglum,“ segir Víðir en hann var staddur í stúdíóinu sínu í Hveragerði með kaffibollann sinn að leyfa straumum listagyðjunnar að leika um sig á meðan hann hlustar á gamalt þungarokk, þegar Albumm hafði samband.

Hver er Sorg? „Sorg er „alter ego,“ hann er karakter sem ég hef ekki mikil skil á, hann lifir milli heima og er úr fornöld hann er nánast ósnertanlegur, hann er sjálfskipuð rokkstjarna. Fátt haggar honum og erfitt er að ná í hann, hann kemur og fer að vild. Hann notar ekki tölvupóst eða önnur nútíma samskipti. Það er hægt að prófa að senda honum flöskuskeyti eða bréfdúfu, þar sem bréfið þarf að vera innsiglað eftir kúnstarinnar reglum, ef ekki, þá á fólk á hættu á að vera slegið til einvígis,“ útskýrir hann og bætir við að hann skapar í gegnum sig. „Ég geri það sem hann segir mér, ég syng meira að segja plötuna og hef aldrei sungið áður,“ viðurkennir hann. „Ég og Gummi Óli vinur minn sem er í hljómsveitinni Kötlu, köllum hann greifann. Hann er harður húsbóndi og hefur skýr skilaboð.“

Víðir spilar á öll hljóðfærin á plötunni, nema trommurnar en hann fékk þurra trommutakkta frá Hollenskum pródúser sem heitir Arnaud k. sem mixaði trommurnar sjálfur o.s.frv.

„Sorg sagði mér að gera allt sjálfur, meira að segja raddir, taka allt upp sjálfur og mixa. Reyndar fékk ég leyfi fyrir að nota einn minn besta vin gítarleikarann Ara Harðarson að spila nokkur sóló og einhverja „lead“ vinnu. Ari hefur sterka tengingu við gamla tíma og þegar við komum saman sem gítartvenna, þá verða til galdrar. Hann er orðinn fastur meðlimur í Sorg og hann hefur ekkert um það að segja,“ segir hann og glottir. „Það þarf reyndar að finna sviðsnafn á drenginn, sjáum hvaða nafn Sorg velur.“

„Takmarkið var ekki að búa til flókna plötu þar sem öll hljóðfærin eru að öskra og ekki heyrist í neinum heldur búa til einfalt hljóðverk sem talar eigið tungumál og hefur boðskap“

Þegar spurður út í tónlistina segir hann að tónlistin er ekki aðalatriðið heldur innihaldið. „Takmarkið var ekki að búa til flókna plötu þar sem öll hljóðfærin eru að öskra og ekki heyrist í neinum heldur búa til einfalt hljóðverk sem talar eigið tungumál og hefur boðskap,“ útskýrir hann og bætir við að platan er fyrst og fremst skilaboð, hrá og köld, vosbúð, fátækt og kuldi.

Talandi um plötuna en sagan á bakvið plötuna er frekar merkileg og átakanleg. Geturðu sagt okkur frá henni? „Sagan byrjar hér á þessari afskektu drungalegu eyju í norðri þar sem byggð er að byggjast og náttúruöflin hafa enn vinninginn fyrir spillingu og auðvaldi. Fátæk móðir ber út nýfætt barn, leggur hana í vök en stúlkan lifir og gefur sér nafnið Ljósbjörg. Hún stundar hvítagaldur en er síðar sökuð að ósekju um svartagaldur, sem var ekki mikið um á Íslandi. Hræddur lýðurinn og yfirvaldið, fógeti og kirkjan elta hana uppi, brjóta hana niður, pína og að lokum brenna hana lifandi. Hún er skilin eftir, en vonin heldur í henni lífinu, en hún deyr af sárum sínum og heldur í sína lokaför til að hitta forfeður sína í norna andaheiminum.“

Víðir segir að allt þetta er byggt á hræðslu og fordómum. „Skilaboðin sem Sorg er að senda út er að hann vill breytingar og er þreyttur á heimsku mannanna. Hann fyrirlítur fordóma í öllu formi og hanns heimspeki er byggð á að allir eru jafnir, óháð kyni, litarhætti, trúarskoðunum, stétt eða stöðu,“ útskýrir hann og segist finna mikið til með Ljósbjörgu. „Hún er alltaf hjá mér einhverra hluta vegna, kannski vaki ég yfir henni eða hún yfir mér jafnvel.“

Listmálarinn tónlistarmaðurinn

Þegar víðir er ekki að gera tónlist er hann mikið að mála og er þá betur þekktur undir nafninu Myrmann, en verkin hans hafa fengið mikla athyggli hér heima og erlendis.

Hver kom á undan, tónlistarmaðurinn eða listmálarinn? „Ég byrjaði í sjónlistum mjög snemma, var sífellt teiknandi og að bralla eitthvað. Skapaði oft ýmindaða heima þar sem ég gat leikið mér einn, helst upp á fjalli eða langt frá öðru mannfólki. Þar bjó ég til í huganum heilu þorpin, þar sem hið góða og vonda börðust fyrir einhverjum sigrum. Ég var oft indjáni man ég að berjast við hvíta manninn,“ rifjar hann upp og brosir.

Hér má sjá verkið Snæfell, eftir Myrmann.

„Ég byrjaði mjög seint í tónlist, átti reyndar gítar þegar ég var unglingur. Fyrst svartan Morris gítar svo skræpóttan blóma steve vai gítar,“ rifjar hann upp. „Ég lagði mig aldrei fram að læra á hljóðfærið, en langaði það samt, gítarleikarar voru í mínum huga semi guðir þar sem þeir þeyttust um sviðið tilbúnir í bardaga með sigrum og töpum. Hljóðfæraleikarar eiga nefnilega misjafna daga,“ útskýrir hann.

Um 25 ára aldurinn tók hann svo ákvörðun og fór í hljóðfærahúsið og keypti gítar, magnara og effekta. Tóku svo við þrjú ár af stífum æfingum þar sem hann æfði sig að meðaltali fjóra til fimm tíma á dag.

„Ég ætlaði mér bara að ná valdi á þessu en þurfti virkilega að hafa fyrir þessu. Ég lít samt ekki á mig sem hljóðfæraleikara, heldur listamann sem notar 12 tóna til að skapa. Mér leiðist frekar að spila tökulög, geri það stundum en það gefur mér ekki mikið,“ viðurkennir hann.

„Tónlist og málverk og einnig lífið er allt byggt upp á sömu hlutum. Allt byggist á þremur tónum í rauninni. Skuggar, millitónar og hápunktar. Millitónarnir eru þetta hversdagslega, hápunktur eru sigrar, gleði, ást og þannig en skuggarnir binda allt saman. Án skugga flýtur allt og það er engin staðfesta. Rokk og þungarokk eru fyrir mér skuggar. Án skugga væri ekkert ljós og öfugt. Það þarf alltaf að vera von, hún heldur vitsmunaverum gangandi.“

Plötuumslagið á plötunni er sérhannað af Pierre-Alain Durand.

Platan er núna komin út á öllum helstu netveitum. Hver dreifir plötunni og hannaði plötu umslagið? „Það er fyrirtækið Cd baby sem dreifir plötunni annars er allt í gegnum Heimasíðu Sorgar. Vínillin er í pressun út í Englandi og hann kemur til landsins á næstu vikum. Listaverkið fyrir plötuna er sérhannað af Pierre-Alain Durand, 3mmi design og rammar verkið skemmtilega inn. Öfugi krossinn er ádeila á fordóma en hann lýsir, það er alltaf von.“

Sorg á Facebook

Myrmann á Facebook og Instagram

sorgband.com

Total
2
Shares
Deila 2
Tísta 0
Previous Article
  • Tónlist

Það er alltaf leið út úr þessu völundarhúsi

  • Posted on 02.12.202102.15.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
Next Article
  • Tónlist

Pale Moon í beinni á Albumm Instagram

  • Posted on 02.18.202102.22.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
Þér gæti einnig líkað við
View Post
  • Tónlist

„Það var kominn tími á að gera teknó“

  • Posted on 02.26.202102.26.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Pale Moon í beinni á Albumm Instagram

  • Posted on 02.18.202102.22.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Það er alltaf leið út úr þessu völundarhúsi

  • Posted on 02.12.202102.15.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Forsöluverði lýkur og sérstakir gestir bætast við

  • Posted on 02.10.202102.11.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Afmælisgjöf og minning til látins bróðurs

  • Posted on 02.08.202102.10.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

„Finnst ég vera að fletta af mér húðinni”

  • Posted on 02.06.202102.11.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

„Vona að lendingin verði mjúk”

  • Posted on 01.29.202102.02.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Fimm uppáhalds plötur Silju Rósar

  • Posted on 01.14.202101.17.2021
  • Ritstjórn Albumm
  • Mest lesið
  • vikan
  • „Ég er umkringdur liði en samt einmanna" „Ég er umkringdur liði en ...
  • „Það var kominn tími á að gera teknó“ „Það var kominn tími á ...
  • Toymachine sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu Toymachine sendir frá sér sína ...
  • Leikur á hljóðverið eins og hljóðfæri Leikur á hljóðverið eins og ...
  • Upplifir sig sem frumgerð eða sérvitring - Sjáðu myndbandið! Upplifir sig sem frumgerð eða ...
  • Upplifir sig sem frumgerð eða sérvitring - Sjáðu myndbandið! Upplifir sig sem frumgerð eða sérvitring – Sjáðu myndbandið!
  • Leikur á hljóðverið eins og hljóðfæri Leikur á hljóðverið eins og hljóðfæri
  • Mánudagsplaylisti Maríu Elísabetar Mánudagsplaylisti Maríu Elísabetar
  • Anna Magga sendir frá sér lagið Red flags Anna Magga sendir frá sér lagið Red flags
  • „Ég var kominn í óreglu og ákvað að skella mér í meðferð" „Ég var kominn í óreglu og ákvað að skella mér í meðferð”
Albumm.is!
  • Tónlist
  • Menning
  • Viðburðir
  • AlbummTV
Skúlagata 1 | 101 Reykjavík 2. hæð | Sími: 612-9150

Input your search keywords and press Enter.