Á nýju HúnGraður plötuinni, Mörgæsir, Vol.III , sem að lendir á Spotify 24. júlí, láta þeir GrimBash og Krumminn Fred sköpunargleðina taka völd.
Þessir ungu meðlimir nýstefnu-tónlistargrúppunar eru báðir búsettir í Danmörku, þar sem að þeir hafa mallað saman einni plötu í nálgunarbanninu. Hinn 19 ára GrimBash stundar hljóðvinnslunám í Horsens og hinn 16 ára Krummi Fred, grunnskólanám i Kaupmannahöfn. Báðir hafa þeir fundið fyrir því hvernig samgöngubannið hefur haft ákveðin andleg áhrif á þá og sköpunarhæfni þeirra.
„Þetta hefur verið ákveðin einangrun. Þegar maður er heima svona lengi er rosalega gott að geta dreift huganum með músíkinni. Þetta covid dæmi hefur alveg aukið mína sköpunargleði sko” segir GrimBash.
Bash og Fred hafa báðir reynt að taka það góða út úr COVID-ástandinu og líta þeir á þessar aðstæður sem “andlegt ferðalag”. Í vor hafa þeir þróað með sér ýmsar aðferðir til að efla sköpunargleðina.
„Við höfum verið að vinna mikið með öndunaræfingar og hugleiðslu. Dýpri öndun eykur andrýmið í öllum skilningi, hreinsar lungun, styrkir ónæmiskerfið, eykur blóðflæðið og gefur okkur bæði andlegan og líkamlegan styrk sko. Svo er þetta líka bara spurning um sjálfsumhyggju. Sjálfsnudd með olíu er mjög næs sjálfsumhyggja.Til þess að komast í gott núvitundarástand er það lykilatriði að hafa hugann við þann líkamspart sem þú ert að bera á hverju sinni. Gott líka að hafa olíuna vel heita. Það er notalegra” segir GrimBash að lokum.
Það er ljóst að hljómsveitin HúnGraður hefur góða reynslu af þessum aðferðum. Það má heyra það þann 24. júlí á plötunni Mörgæsir, Vol.III. Hægt er að for-hlaða plötuna hér.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á plötuna Seaworld sem kom út í fyrra:
Húngraður á Facebook
Umræðan