Fyrir skömmu sendu tónlistarmennirnir THEØ (Theodór) og Yn Baby (Fannar) frá sér sitt fyrsta lag en það ber heitið „Moonlight.”Drengirnir eru aðeins 18 ára en þeir kynntust á listnámsbraut í Borgarholtsskóla á fyrsta ári.
„Fyrst var ég Theodór (THEØ) að vinna með öðrum artistum í tónlist, þangað til Fannar (YN BABY) spurði mig hvort við ættum að fikta eitthvað í tónlist, til gamans. Við byrjuðum svo að vinna í lögum þangað til eitt lag (Moonlight) varð að laginu sem við unnum mest í og beintum allri okkar athygli að.”
Í kjölfarið ákváðu drengirinir að gefa lagið út, til að veita fólki gleði og ánægju. „Á meðan covid veiran var á sínum hæsta punkti hér á landi, þá vorum við mættir á hverju kvöldi í stúdíóið til að gera þetta lag eins fullkomið og hægt væri.”
Aðspurðir hvað veitir þeim innblástar játar Theodór að hann hlustar mikið á Michael Jackson og tónlist sem gefur frá sérmikla orku á meðan a’ Fannar hlustar mikið á Hip hop og þar má nefna Post Malone, Dababy og Juice Wrld.
„Við fengum mikla reynslu frá því að gefa út okkar fyrsta lag saman og fyrir okkur er þetta bara rétti lífstílinn eins og stendur, og viljum við halda áfram að búa til tónlist og hamingju” segja drengirnir að lokum.
Umræðan