Tónlistarkonan VALDIS var að senda frá sér sitt fyrsta lag „Hold On To Our Love” í samstarfi við pródúsent- og lagahöfundinn Anton Ísak Óskarsson, einnig þekktur sem Future Lion.
Lagið fjallar um fjarsamband tveggja aðila sem hafa verið aðskilin og sakna hvers annars. Lagið er blanda af nokkrum tónlistarstefnum en þá aðallega nútíma popp tónlist með dass af kvikmyndatónlist.
VALDIS er úr Skagafirðinum og hefur sungið frá unga aldri og tekið þátt í alls konar verkefnum, meðal annars Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2018 þar sem hún sigraði símakosninguna. Hún er nýútskrifuð úr söngskólanum Complete Vocal Institute sem er staðsettur í Kaupmannahöfn.
„Valdís valdi þetta lag úr nokkrum demóum sem að ég var búinn að undirbúa fyrir fyrsta sessionið okkar og textinn varð til það sama kvöld” segir Anton og segir að allt ferlið hafi gengið frekar hratt fyrir sig.
„Við kynntumst í gegnum sameiginlegan vin og þannig byrjaði samstarfið. Það hefur gengið mjög vel og þetta er bara byrjunin” segir Valdís.
Við má búast að það komi einnig acoustic útgáfa af laginu á streymisveitur fyrr en síðar.
Umræðan