Tónlistarmaðurinn og gullbarkinn Eyþór Ingi er heldur betur á ferð og flugi þessa dagana en í desember stendur hann fyrir heljarinnar hátíðartónleikum víðsvegar um landið! Eyþór er án efa einn af okkar fremstu söngvarum en hann hefur einnig getið sér gott orð fyrir að vera mögnuð eftirherma.
Þetta byrjaði allt samann sem litlir heimilislegir tónleikar fyrir norðann heima í Dalvíkurkirkju og nágrenni og hefur ferðalagið stækkað með árunum. Það hefur verið allt að því uppselt á flest alla staði en á örfáum stöðum hefur verið bætt við aukatónleikum. – Eyþór Ingi.
Hér er á ferðinni létt, hugljúf og jólaleg kvöldstund þar sem Eyþór kemur fram einn síns liðs, með píanóið, gítarinn og röddina að vopni. Sérstakir gestir eru Kórar úr heimabyggð á hverjum stað fyrir sig.
Í fyrra seldist fljótt upp og færri komust að en vildu. Tryggðu þér og þínum miða í tíma á þessa einstöku skemmtun! Förin hófst 2. desember. Hægt er að nálgast miða á tónleikana á Miði.is.
Hér fyrir neðan má sjá þá tónleika sem eftir eru:
Kópavogur (Lindakirkja) – 13.Desember – Aukatónleikar – Örfáir miðar eftir
Hafnarfjörður (Víðistaðakirkja) – 15.Desember – Örfáir miðar eftir
Selfoss (Selfosskirkja) – 16.Desember – Örfáir miðar eftir
Reykjanesbær (Hljómahöllin)- 18.Desember – UPPSELT
Reykjanesbær (Hljómahöllin) – 19.Desember (Miðasala á hljomaholl.is) – Aukatónleikar
Blönduós (Blönduóskirkja) – 20.Desember – Örfáir miðar eftir
Akureyri (Glerárkirkja) – 21.Desember – Uppselt kl. 20:00. Aukatónleikar kl. 22:15!
Dalvík (Dalvíkurkirkja) – 22.Desember – UPPSELT
Umræðan