Bræðurnir Markús og Birkir í omotrack hafa sent frá sér nýtt lag, thanks for dropping by, sem er fyrsta lagið af komandi plötu. Kveikjan að laginu var misskilningur milli þeirra og öryggisvarðar sem bankaði á dyrnar á stúdíóinu þeirra.
„Án þess að segja of mikið þá var þessi öryggisvörður ekki sá kurteisasti. Okkur fannst eitthvað fyndið að semja í kjölfarið eins konar ástarlag til hans, þannig ef þú heyrir þetta lag kæri öryggisvörður þá er þetta kveðja til þín. Á komandi plötu er þemað einmitt það að sækja innblástur í litla, hversdagslega og jafn vel ómerkilega hluti til þess að túlka stórar tilfinningar.”
Lagið má nálgast á Spotify og öllum helstu streymisveitum. Myndband við lagið ásamt fleira efni frá omotrack er væntanlegt á næstu dögum og vikum.
Umræðan