Gugusar, Ingibjörg Turchi, Salóme Katrín, Skoffín, Ultraflex og Volruptus hljóta Kraumsverðlaunin 2020.
Kraumsverðlaunin voru afhent í þrettánda sinn á Laugaveginum síðdegis í dag. Í stað hefðbundins verðlaunahófs innandyra voru verðlaunin veitt undir berum himni á Laugaveginum í tengslum við tónleikaseríuna, Talið í Tónum – Jóladagal, sem fer fram í allan desember fram að jólum og fram koma íslenskir listamenn úr öllum áttum, m.a. fjölmargir verðlaunahafar og listamenn sem tilnefndir eru til Kraumsverðlaunanna í ár.
Kraumsveðrlaunahafinn Salóme Katrín, sem á dögunum gaf út sína fyrstu breiðskífu Water, spilaði á verðlaunaafhendingunni. Venju samkvæmt eru sex hljómsveitir og listamenn verðlaunaðir fyrir plötur sínar í ár. Aðrir handahafar Kraumsverðlaunanna 2020 eru; Gugusar, Ingibjörg Turchi, Skoffín, Ultraflex og Volruptus.
Kraumsverðlaunin eru veitt fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika. Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa verðlaunin frá því þau voru fyrst veitt árið 2008 eru Auður, Cell7, Daníel Bjarnason, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Lay Low, Mammút, Ólöf Arnalds, Retro Stefson og Sóley.
Dómnefnd verðlaunanna eru skipuð fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Greinilegt er að mikil gróska er í íslensku tónlistarlífi hvað útgáfustarfsemi varðar, enda fór dómnefndin yfir og hlustaði á 439 hljómplötur og útgáfur sem komu út á árinu við val sitt.
Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa rúmlega sjötíu listamenn og hljómsveitir hlotið verðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferli sínum.
Umræðan