Plötuverslunin Lucky Records kynnir með stolti nýjustu útgáfu sína, plötuna Ghost Choir, sem er jafnframt frumraun hljómsveitarinnar The Ghost Choir.
Í dag, Laugardaginn 22. febrúar verður haldinn útgáfufögnuður í versluninni við Rauðarárstíg. Fögnuðurinn hefst klukkan 15:00 og verður platan spiluð í heild sinni klukkan 16:00 Að því búnu leikur hljómsveitin nokkra vel valda ópusa. Áður en hófið byrjar, nánar tiltekið frá klukkan 12:15, mun King Lucky taka „Soul 45’s“ DJsett. Fyrir þá sem ekki vita er tónlist The Ghost Choir blanda af ólíkri tónlist og hljómsveitin tvinnar saman á skemmtilegan hátt fjölbreyttan bakgrunn meðlima úr hinum ýmsu afkimum djass, hiphop, rokk, funk og klassískrar tónlistar.
The Ghost Choir á Facebook
Lucky Records á Facebook
Umræðan