Fyrsta smáskífan af Apótekaranum eftir Smára Guðmundsson er komin út, með því fylgir textamyndband sem Björgvin Guðjónsson setti saman.
Smári Guðmundsson hefur frá unga aldri sinnt tónlist af mikilli elju og tekið þátt í mörgum tónlistartengdum verkefnum í gegnum tíðina (Klassart, Mystery Boy, Lifun, Tommygun Preachers) Hann hefur að undanförnu unnið að efni undir sínu eigin nafni og það nýjasta ber heitið The Apotheker sem Smári vann þegar hann dvaldi í Berlín árið 2019. Þegar Apótekarinn drepur niður fæti í litlu sjávarþorpi á suðvesturhorni Íslands fylgja því dularfullir atburðir. Hafið, sem eitt sinn var þorpsbúum lífsbjörg, hættir að fæða og næra og ungir menn deyja hver á fætur öðrum af óútskýrðum ástæðum. Apótekarinn kom ekki einn því dauðinn virðist hafa verið með í för.
Upptökustjórn og hljóðblöndun: Stefán Örn Gunnlaugsson í Stúdíó Bambus. Hljóðjöfnun: Sigurdór Guðmundsson í Skonrokk Stúdíós. Hljóðfæraleikarar, raddir og söngur: Brian Stivale, Fríða Dís Guðmundsdóttir, Smári Guðmundsson, Stefán Örn Gunnlaugsson, Viktor Atli Gunnarsson, Þorvaldur Halldórsson. Grafísk hönnun: Björgvin Guðjónsson. Meðhöfundur handrits: Chris Kyriazidi Útgefandi: Smástirni.
Umræðan