Fyrir stuttu sendi tónlistarmaðurinn BREKI frá sér lagið My Freedom en lagið er tekið af nýrri sólóplötu sem kemur út á næstunni.
Árið 2016 sendi BREKI frá sér plötuna Faces Of The Walls en platan vakti talsverða athygli enda frábær plata þarna á ferðinni. Einvalalið tónlistarmanna kemur að nýja laginu en Dóri oft kenndur við hljómsvetina Legend sér um upptökur og mix og Hálfdán Árnason plokkar bassann.
Það er alltaf gott að skella smá suddarokk á fóninn og mækir Albumm eindregið með BREKA og hans tónlist. Skellið á play!
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á plötuna Faces Of The Walls:
BREKI á Facebook
Umræðan