Fyrir skömmu sendi dúettinn Labrab frá sér lagið „Wichita.” Labrab er einn kvikmyndagerðamaður og einn arkitekt sem elska að búa til tónlist saman en hana skipa Viðar Hákon Gíslason og Ólafur Hjördísarson Jónsson.
„Við erum báðir frá Ísafirði en kynntumst þó í borg óttans. Við vorum þá bara unglingar og Reykjavík var hundleiðinleg. Æfðum fótbolta og eitthvað en í KR var rosa tippaleg stemning þannig að við hættum… prufuðum að kveikja í mýrinni og stela hjólum og drekka vín og finna eitthvað spennandi að gera af okkur. Það var ekki nógu spennandi heldur svo við stofnuðum hljómsveit án þess að kunna neitt á hljóðfæri. Fundum gaura í skólanum sem kunnu eitthvað og stofnuðum hljómsveit með þeim. Síðar héldum við áfram í allskonar músik, útgáfu og tónleikabralli” Segir Viðar Hákon Gíslason.
Meðal hljómsveita sem drengirnir hafa stofnað eða verið í saman er unglingahljómsveitin Púff (sem hitaði td oftar en ekki upp fyrir HAM og Risaeðluna sælla minninga),
Sölvi Blöndal var á trommum í Púff, þegar hann hætti svo og stofnaði hljómsveitina Quarashi ásamt Steinari Fjeldsted, þá kom trymbillinn Doddi inn á trommur. Svo var það Kvartett Ó.Jónson og Grjóni… eftir það flutti Ólafur til Danmerkur og lærði arkítektúr. Viðar stofnaði þá hljómsveitina Trabant ásamt Dodda. Til hliðar við Trabant stofnuðum kapparnir The Funerals með Ragnari Kjartanssyni. „Þá flugum við alltaf Óla heim til að spila og taka upp með okkur.”
Eftir heimkomuna fór Ólafur að vinna með hljómsveitunum Hudson Wain og Ragnar Kjartansson All Star Band ásamt því að teikna fullt af húsum. Þegar þarna var komið við sögu hafði Viðar flutt til Noregs því hann hafði fengið sig full saddan af tónlistarbransanum og hætti í tónlist.
Tónlistaráhuginn kom þó aftur!
Viðar hefur nú flutt aftur heim til Íslands og síðastliðin 2 árin hafa þeir Ólafur farið á fullt aftur í að búa til tónlist. Hugmyndirnar hrúgast upp sem aldrei fyrr og það er drullu gaman að sögn piltanna. Eins og fyrr segir er lagið Wichita komið út og í framhaldinu ætla þeir að gefa út fjögura laga kassettu (í sumar), svo massast út efni eins og hægt er. „Sum lögin eru frekar hefðbundin popplög en það hentar okkur illa að fara eftir uppskrift.”
Einnig hafa þeir verið í töluverðu samstarfi við Sigurð Guðmundsson (hjálm) og það var einhver pæling að blanda þessu öllu saman. Það lyggur einhver heill hellingur af skemmtilegum hugmyndum hjá Sigga og aldrei að vita nem að þetta renni bara allt í eitt.
Labrab á Facebook
Umræðan