Tónlistarkonan KARÍTAS var að senda frá sér plötuna Songs 4 Crying.
Platan er unnin í nánu samstarfi við Daða sem sá um allr útsetningar plötunnar. Helgi Sæmundur sá um mix og masteringu og Einar Stef í Vök og Hatara sá um trommuslátt í laginu She Can’t Love You.
„Ég og Daði kynntumst að sjálfsögðu í gegnum Prikið, hef verið að dj-a á kvöldum þar sem að rapparar eru að koma fram og sá um undirspil fyrir hann einhverntímann. Svo þegar ég heyrði plötuna hans Klámstjarna í fyrra þá ákvað ég að senda á hann línu og athuga hvort hann væri til í að pródúsera fyrir mig nokkur lög og hann tók frekar vel í það, þrátt fyrir að hafa aldrei heyrt mig syngja.”
Karítas kíkti í Stúdíóið til Daða og strax varð lagið Burn og í framhaldi gengu upptökurnar frekar hratt fyrir sig.
„Til að lýsa plötunni í nokkrum orðum þá myndi ég segja að hún sé myrk, berskjölduð, melankólísk, rómantísk og leið (á góðann hátt). Ég veit eiginlega ekki afhverju ég skírði hana Songs 4 Crying mér fannst það bara passa við. Það er hinsvegar ekkert tryggt að fólk fari að gráta, en ef svo er þá er það bara geggjað, segir Karítas að lokum.”
Umræðan