Albumm.is!
  • Tónlist
  • Menning
  • Viðburðir
  • AlbummTV
  • „Það var kominn tími á að gera teknó“
    • Posted on 26.02.2102.26.2021
  • ZÖE gefur út Feed The Wolves
    • Posted on 26.02.21
  • Toymachine sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu
    • Posted on 25.02.2102.25.2021
  • „Ég er umkringdur liði en samt einmanna”
    • Posted on 25.02.2102.26.2021
  • Anna Magga sendir frá sér lagið Red flags
    • Posted on 24.02.2102.26.2021
Sendu okkur grein
Albumm.is!
Albumm.is!
  • Tónlist
  • Menning
  • Viðburðir
  • AlbummTV
  • Tónlist

Það er alltaf leið út úr þessu völundarhúsi

  • Posted on 02.12.202102.15.2021
  • Ritstjórn Albumm

Tónlistarmennirnir YAMBI og Jörgen hafa gefið út sitt fyrsta lag saman. Lagið er grípandi danslag sem ætti að koma öllum í gírinn þennan föstudag. Sérstaklega núna þegar skemmtistaðirnir hafa loksins opnað á ný.

Yambi hefur vakið athygli síðustu ár fyrir tónlist sína. Hann er rúmlega þrítugur og heitir Bjarni Freyr Pétursson. Fyrir nokkrum misserum kynntist hann kólumbíska pródúsentinum og plötusnúðnum Jörgen. Sá er fluttur hingað til lands og vinna þeir nú saman að nýrri tónlist. Fyrsta lagið sem þeir gefa saman út heitir Maze og varð til í fyrstu ferð þeirra saman í stúdíóið.

„Þetta lag einhvern veginn kom til okkar. Við bara settumst niður og áður en við vissum var lagið komið. Við höfðum aldrei áður unnið saman og höfðum í raun litla hugmynd fyrir fram um hvað við ætluðum að gera. Við vissum bara að við vildum gera danstónlist. Það var bara einhvern veginn eins og þessu væri ætlað að gerast,” – segir YAMBI. 

Þá er textinn í laginu grípandi. Hann endurspeglar margt í umræðunni núna um andlega líðan og mikilvægi þess að finna ljósið í myrkrinu.

„Textinn kom líka bara þegar við sátum saman þessa kvöldstund. Hann fjallar um þessa baráttu sem við þekkjum mörg við kvíða og þunglyndi. Þessar tilfinningar að finnast maður vera öðruvísi en allir aðrir í kringum mann og að upplifa sig fastan og vita ekki hvernig maður kemst úr aðstæðunum. Þetta völundarhús sem við týnumst í mörg hver. Allir upplifa erfiðleika og þurfa að taka erfiðar ákvarðanir og svo er það þessi endalausa leit af tilganginum með þessu öllu.”

Þá eru ákveðin skilaboð fólgin í laginu „Þau er í raun það að það er alltaf leið út úr þessu völundarhúsi þó það líti ekki alltaf þannig út. Ég held að margir geti tengt við margt í textanum,” segir YAMBI. 

Þeir félagar vonast til að lagið gleðji fólk, fái það til að dansa og skynja fegurðina sem getur komið út úr myrkrinu ef maður berst. Þetta lag er aðeins forsmekkurinn að því sem koma skal frá þeim félögum því það er hellingur af nýju efni á leiðinni frá þeim. 

Fylgstu með Yamba á Facebook og Instagram

Total
5
Shares
Deila 5
Tísta 0
Previous Article
  • Tónlist

Forsöluverði lýkur og sérstakir gestir bætast við

  • Posted on 02.10.202102.11.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
Next Article
  • Tónlist

Þreyttur á heimsku mannanna

  • Posted on 02.16.202102.22.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
Þér gæti einnig líkað við
View Post
  • Tónlist

„Það var kominn tími á að gera teknó“

  • Posted on 02.26.202102.26.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Pale Moon í beinni á Albumm Instagram

  • Posted on 02.18.202102.22.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Þreyttur á heimsku mannanna

  • Posted on 02.16.202102.22.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Forsöluverði lýkur og sérstakir gestir bætast við

  • Posted on 02.10.202102.11.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Afmælisgjöf og minning til látins bróðurs

  • Posted on 02.08.202102.10.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

„Finnst ég vera að fletta af mér húðinni”

  • Posted on 02.06.202102.11.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

„Vona að lendingin verði mjúk”

  • Posted on 01.29.202102.02.2021
  • Ritstjórn Albumm
View Post
  • Tónlist

Fimm uppáhalds plötur Silju Rósar

  • Posted on 01.14.202101.17.2021
  • Ritstjórn Albumm
  • Mest lesið
  • vikan
  • „Ég er umkringdur liði en samt einmanna" „Ég er umkringdur liði en ...
  • „Það var kominn tími á að gera teknó“ „Það var kominn tími á ...
  • Toymachine sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu Toymachine sendir frá sér sína ...
  • Leikur á hljóðverið eins og hljóðfæri Leikur á hljóðverið eins og ...
  • Upplifir sig sem frumgerð eða sérvitring - Sjáðu myndbandið! Upplifir sig sem frumgerð eða ...
  • Upplifir sig sem frumgerð eða sérvitring - Sjáðu myndbandið! Upplifir sig sem frumgerð eða sérvitring – Sjáðu myndbandið!
  • Leikur á hljóðverið eins og hljóðfæri Leikur á hljóðverið eins og hljóðfæri
  • Mánudagsplaylisti Maríu Elísabetar Mánudagsplaylisti Maríu Elísabetar
  • Anna Magga sendir frá sér lagið Red flags Anna Magga sendir frá sér lagið Red flags
  • „Ég var kominn í óreglu og ákvað að skella mér í meðferð" „Ég var kominn í óreglu og ákvað að skella mér í meðferð”
Albumm.is!
  • Tónlist
  • Menning
  • Viðburðir
  • AlbummTV
Skúlagata 1 | 101 Reykjavík 2. hæð | Sími: 612-9150

Input your search keywords and press Enter.