Lagið „Glans” er fyrsta lag hljómsveitarinnar Tendru og jafnframt fyrsta smáskífan af væntanlegri breiðskífu hljómsveitarinnar sem kemur út síðar á þessu ári.
Hljómsveitin Tendra var stofnuð í upphafi árs 2020 og eru það þau Mikael Máni Ásmundsson gítarleikari og Marína Ósk Þórólfsdóttir söngkona sem standa að baki bandinu. Laginu Glans mætti lýsa sem nútímalegri söngvaskáldatónsmíð, bragðbættri með sterkum keim sígildrar dægurlagatónlistar.
„Heiti lagsins vísar í vissa glansmynd sem annað fólk sér af manni úr fjarlægð og virðist í fyrstu heiðarleg og raunsæ birtingarmynd af lífi manns.”segir Marína og Mikael bætir við; “Á bakvið luktar dyr heima fyrir er myndin þó ekki alveg eins glansandi og áður var talið.”
Marína Ósk samdi lag og texta og syngur og Mikael Máni leikur á rhodes, gítar, slagverk, rafhljóð, tónboga og hannaði sömpl auk þess sem hann pródúseraði lagið. Útsetninguna unnu þau í sameiningu. Birgir Jón Birgisson sá um að hljóðblanda og Finnur Hákonarson hljómjafnaði.
Umræðan