Stuttskífan varp er sú fjórða í röðinni sem tónlistarkonan Kría sendir frá sér.
Varp hefur tilraunakennt yfirbragð en á sama tíma söguþráð sem hlustandinn hverfur inn í. KRÍA segir þessa stuttskífu talsvert frábrugðna fyrrum útgáfum en telur hana sitt besta verk til þessa. KRÍA sá einnig um hönnun umslagsins. Óll lögin eru samin og útsett af henni sjálfri en auk þess kom Atli Steinn Bjarnason að útsetningunni í nokkrum lögum (pathogen, safety & post safety) og Arnór Jónasson (VAR) spilar á gítar og samdi einnig texta með KRÍU.
Umræðan